“Mun finna fyrir óþægindum þegar hann tannburstar sig ef þetta var ekki rétt”
Fyrsti leikur tímabilsins
Þetta er stolið frá .net. Til að spara mér tíma byggi ég mína umfjöllun á þeirri.
Liðið
12 Halldór Snær Georgsson
4 Jóhannes Kristinn Bjarnason
7 Finnur Tómas Pálmason
9 Eiður Gauti Sæbjörnsson
‘94 - 24 Kristófer Orri Pétursson
11 Aron Sigurðarson (f)
15 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
17 Luke Rae
‘68 - 10 Guðmundur Andri Tryggvason
19 Vicente Valor
‘46 - 29 Aron Þórður Albertsson
21 Gabríel Hrannar Eyjólfsson
‘84 - 22 Ástbjörn Þórðarson
23 Atli Sigurjónsson
‘84 - 27 Róbert Elís Hlynsson
28 Hjalti Sigurðsson
Hvað réði úrslitum?
Þetta var opið á báða bóga. Færanýtingin góð í fyrri hálfleik en það vantaði upp á í seinni hálfleik. Halldór og Stubbur gerðu vel að koma í veg fyrir fleiri mörk.
Bestu leikmenn
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Mjög flottur í leiknum. Góður á boltanum og stórkostleg spyrnutækni, opnaði markareikninginn í dag með glæsilegu marki.
Ásgeir Sigurgeirsson
Frábær frammistaða hjá Ásgeiri. Skorar og leggur upp og kom sér svo sannarlega í færi til að gera enn betur.
Atvikið
Það var hellingur af atvikum í þessum leik. Sá ekki rauða spjaldið á Aron Sigurðarson og það sést ekki í sjónvarpsútsendingu. Menn vildu meina að hann hafi verið með olnbogann á lofti. Frábært mark hjá Jóhannesi og Ásgeir skoraði eftir laglegan undirbúning hjá Bjarna Aðalsteins.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin eru komin á blað en bæði lið eflaust svekkt að vera ekki komin með þrjú stig á töfluna.
Vondur dagur
Aron og Hjalti verða að vera nefndir hérna. Fengu rauð spjöld sem þeir hefðu klárlega geta komið í veg fyrir. Ívar Örn er ávalt traustur í vörn KA en átti slaka sendingu beint á Atla Sigurjónsson og í kjölfarið kom fyrsta mark leiksins
Dómarinn - 8
Það var nóg að gera hjá Jóhanni Inga. Rauða spjaldið á Hjalta hárrétt en ég sá ekki sjálfur rauða spjaldið á Aron almennilega en hann virðist hafa notað olnbogann þegar boltinn var ekki nálægt. Sama hvað þá má það hreinlega ekki.
Staðan
Hér á að vera stöðutafla eftir umferðina.